Aðalfundur Shihtzu deildar 27.3. 2018 Fundur settur kl. 17.00 1. Skýrsla stjórnar Soffía flytur Umræður um skýrslu stjórnar og hún borin upp samþykktar og samþykkt einróma. 2. Reikningar lagðir fram af Súsönnu Reikningar samþykktir einróma og fundar maður hefur orð á því hversu vel stæð deildin er. 3. Kostning stjórnar
Laus sæti eru eru þrjú úr stjórn fara Helga, Lilja og Stella Sif þær gefa allar kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Ekki eru fleiri framboð þannig að þær eru kjörnar. 4. Önnur mál Rætt er um sérsýngu Tíbetanskar tegundir sem átti að halda núna i maí en þvi miður náðum við ekki nógu mörgum sýndum hundum til þess að þetta gæti gengið upp fjárhagslega. Ekki hefur verið gefið uppá bátinn þessi samsýning og verður haldið áfram með vinnuna og reynt að stefna á september. Hugmynd um að fá eina eða fleiri tegundir til að vera með til þess að svona sýning standi undir kostnaði. Hugmynd um opna sýningu þar sem klipptir hundar fengju að vera með og allir til í að vinna að því og fá þá jafnvel íslenskan dómara í verkefnið. Súsanna stingur uppá að sleppa ekki tilboði Fjarðar verslunarmiðstöðvarinnar um að vera með viðburð 5. Maí n.k. Reynum að finna eitthvað til að vekja athygli á okkur og hundunum. Kosið var um sýningar nefnd og var stungið uppá að Dúa, Anja og Inga tækju það að sér sem þær tóku vel í og frábært að fá þessar dugmiklu konur í þetta það er á döfinni er að hafa sýningu í byrjun 1. Sept. og svo að spá í 1. Maí fyrir viðburð í Firði og þetta verður samvinnuverkefnið núna á næstunni. Dúa ætlar að kanna Sólheimakot 21 eða 22 apríl fyrir viðburð þar sem stigahæsti hundur og hvolpur verður heiðraður. Fundi slitið kl. 18.00 Helga A Þórðardóttir sk |