Starfshópur um starf ræktunardeildar hefur skilað inn tillögum um breytingar á starfsreglum ræktunardeilda og í kjölfarið sameiningu nokkurra deilda. Stjórn HRFÍ hefur fjallað um tillögurnar og kynnt þær fyrir þeim deildum sem koma við sögu í fyrsta áfanga breytinganna og að auki fyrir fulltrúaráði félagsins. Stjórn félagsins boðar til almenns félagsfundar 27. apríl kl. 18:00 á skrifstofu félagsins Síðumúla 15 þar sem þessar tillögur verða kynntar og ræddar. Ákvörðun um að leggja niður deildir eða stofna nýjar verða lögum samkvæmt aðeins teknar á aðalfundi félagsins og þurfa slíkar breytingar aukinn meirihluta atkvæða fundarmanna (tvo þriðju atkvæða). SK |