Fundur með stjórn og nefndum Shihtzudeildar
Haldinn á Amokka Borgartúni 03.02.2011 Kl 20:00
Mættir: Allý, Mæja, Dottý, Dúa, Stella, Soffía, Karlotta, Súsanna.
Fjarverandi: Malla, Helga Magnea, Helga Þ, Anja.
Dagatal: Búið að selja á milli 30 og 40 dagatöl. Verðum að gera allt sem við getum til að selja fyrir prentkostnaði. Reynum að selja á sýningu HRFI í febrúar, í Garðheimum á smáhundadögum og í sýningaþjálfun.
Bás: Ætlum að vera með bás á sýningunni. Súsanna pantar básinn. Soffía er með allt sem til þarf við uppsetningu. Díana dóttir Allýjar ætlar að vera í básnum að selja dagatöl og við þurfum að reyna að ná til sem flestra til að fá fólk með hunda í básinn líka. Þurfum að prenta út tegundalýsinguna sem Allý bjó til og hafa bæði í básnum og í Garðheimum.
Sýningaþjálfun: Senda mail á alla, setja auglýsingu á heimasíðuna og Facebook. Allar að setja í status hjá okkur til að sem flestir sjái auglýsinguna. Þeir sem gáfu kost á sér í sýningaþjálfun eru: Karlotta, Dottý, Súsanna, Soffía, Vonandi gefa fleiri kost á sér í framhaldinu. Helga Þórðardóttir komst ekki á fundinn en hún hefur einnig kost á sér.
Garðheimar: Dottý fer í að smala saman fólki til að vera í Garðheimum.
Vorskemmtun: Stefnum á að halda smá partý jafnvel í heimahúsi,hugmynd að dagsetningu 4. mars n.k. Karlotta ætlar að sjá um þetta ásamt Allý og Mæju.
Önnur mál:
Stud listi: Ákveðið að bjóða öllum sem eiga karlhunda og eru tilbúnir til að lána þá á tíkur að skrá sig á sérstakan lista á heimasíðunni. Þessir hundar þurfa að vera með hrein augnvottorð. Notum tækifærið til að auglýsa augnskoðunina í leiðinni.
Heimasíðumál: Allý kom með þá hugmynd að við myndum bæta inn á síðuna upplýsingum um: Hver er deildin, fyrir hvað stendur hún o.s.frv.
Fundi slitið kl. 21:45
Súsanna ritar.
SA |